Útlánakönnun Seðlabanka Íslands
Seðlabankinn framkvæmir ársfjórðungslega útlánakönnun á meðal viðskiptabankanna fjögurra. Spurt er um mat þeirra á þróun framboðs og eftirspurnar eftir lánsfé og auk þess hvaða þætti þeir telji að hafi haft ráðandi áhrif á framboð á síðustu þremur mánuðum. Einnig er spurt um væntingar viðskiptabankanna um horfur næstu sex mánuði. Könnunin var síðast framkvæmd 1. til 15. apríl sl. og eru niðurstöðurnar hér byggðar á meðaltali svara viðskiptabankanna.
NánarVorfundur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins 2024
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sótti vorfund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins 16. til 20. apríl 2024 í Washington, ásamt Björk Sigurgísladóttur, varaseðlabankastjóra fjármálaeftirlits, og öðrum fulltrúum Seðlabankans.
NánarTilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 04/2024
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
NánarSkráning PROSEGUR CHANGE ICELAND ehf. sem veitandi gjaldeyrisskiptaþjónustu
Hinn 12. apríl 2024 komst fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands að þeirri niðurstöðu að PROSEGUR CHANGE ICELAND ehf. væri hæft til að fá skráningu sem veitandi gjaldeyrisskiptaþjónustu.
NánarFrekari upplýsingar vegna afturköllunar starfsleyfis NOVIS
Seðlabanki Íslands birti frétt 6. júní 2023 um ákvörðun Seðlabanka Slóvakíu (Národná banka Slovenska, NBS), eftirlitsaðila NOVIS* , um að afturkalla starfsleyfi vátryggingafélagsins. Frekari upplýsingar um afturköllunina eru aðgengilegar á vefsíðu Seðlabanka Íslands, sem hafa verið uppfærðar.
Nánar