logo-for-printing

19. apríl 2024

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 04/2024

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 03/2024 dagsettri 21. mars sl. þar sem að engar breytingar hafa átt sér stað á meginvöxtum bankans síðan þá.

Dráttarvextir eru því að sama skapi óbreyttir og verða áfram 17,00% fyrir tímabilið 1. – 31. maí 2024.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. maí 2024:

• Vextir óverðtryggðra útlána 8,95% - (lækka 9,45%)
• Vextir verðtryggðra útlána 3,50% - (óbreyttir)
• Vextir af skaðabótakröfum 5,97% - (lækka úr 6,30%)

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 04/2024
Til baka