logo-for-printing

Gengi

Nýjasta skráða opinbera viðmiðunargengi Seðlabanka Íslands: 23.3.2023
Gjaldmiðill Mynt Miðgengi
Bandaríkjadalur USD 137,79
Sterlingspund GBP 169,33
Kanadadalur CAD 100,77
Dönsk króna DKK 20,126
Norsk króna NOK 13,284
Sænsk króna SEK 13,358
Svissneskur franki CHF 150,37
Japanskt jen JPY 1,0492
SDR XDR 185,67
Evra EUR 149,9
Kínverskt júan CNY 20,172
Ný-Sjálenskur dalur NZD 86,28
Ástralíudalur AUD 92,29
Hong Kong dalur HKD 17,554
Suður-Afrískt rand ZAR 7,579
Tékknesk króna CZK 6,336
Ungversk forinta HUF 0,3896
Tyrknesk líra TRY 7,24
Pólskt slot PLN 31,983
Nígerísk næra NGN 0,2987
Tævanskur dalur TWD 4,5288
Suðurkóreskt vonn KRW 0,1074
Súrinamskur dalur SRD 3,988
Ísraelskur sikill ILS 38,074
Singapúrskur dalur SGD 103,85
Mexíkóskur pesi MXN 7,424
Indversk rúpía INR 1,6752
Búlgarskt lef BGN 76,64
Brasilískt ríal BRL 26,301
Taílenskt bat THB 4,0384
Jamaískur dalur JMD 0,911
Sádi-arabískt ríal SAR 36,676
Skráning: 23.03.2023

Rússneska rúblan ekki skráð 

Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að hætta tímabundið að skrá opinbert gengi rússneskrar rúblu gagnvart íslenskri krónu. Ástæða ákvörðunarinnar er sú að Seðlabanki Evrópu (ECB) hefur hætt skráningu á gengi rúblunnar gagnvart evru vegna þeirra aðstæðna sem nú ríkja. Gengi íslenskrar krónu gagnvart rússneskri rúblu hefur byggst á gengisskráningu ECB. 

Sjá tilkynningu Seðlabanka Evrópu (ECB) hér
(Þetta er birt 9.3.2022)

 

Breytingar á gengisskráningu

Frá og með 31. ágúst 2020 hefur Seðlabanki Íslands skráð opinbert viðmiðunargengi um klukkan 14:15 á mið-evrópskum tíma (e. Central European time) til samræmis við verklag sem þekkist í nágrannalöndum. Viðmiðunargengið er birt opinberlega á heimasíðu bankans um klukkan 16:00 á íslenskum tíma hvern viðskiptadag en ekki um klukkan 11:00 eins og áður. Seðlabankinn leggur áherslu á að gengi gjaldmiðla er eingöngu birt í upplýsingaskyni og til að fullnægja lagakröfum.

 

Frá og með 1. apríl 2020 var sú breyting gerð að Seðlabankinn birti eingöngu skráð miðgengi allra gjaldmiðla sem bankinn skráir og er það þá opinbert viðmiðunargengi. Birting á kaup- og sölugengi gjaldmiðla lagðist þá af. Þetta verklag er til samræmis við verklag seðlabanka í samanburðarlöndum. Frétt um breytingar á gengisskráningu Seðlabanka Íslands má sjá hér á vefsíðu bankans.

 

Opinbert viðmiðunargengi Seðlabankans er uppfært daglega hér á vef bankans um kl. 16.

Ofangreind viðmiðunargengi eru ekki ætluð til notkunar í markaðsviðskiptum, eða í almennum viðskiptum við fjármálafyrirtæki, beint eða óbeint, heldur er birting á opinberu viðmiðunargengi eingöngu í upplýsingaskyni og til að fullnægja lagakröfum.

Gengi íslensku krónunnar er ákvarðað á gjaldeyrismarkaði sem er opinn á milli kl. 9:15 og 16:00 hvern virkan dag. Einu sinni á dag skráir Seðlabanki Íslands opinbert viðmiðunargengi krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum, til viðmiðunar í opinberum samningum, dómsmálum og öðrum samningum milli aðila þegar önnur gengisviðmiðun er ekki sérstaklega tiltekin, sbr. 29. gr. laga nr. 92/2019 um Seðlabankann, og um leið er skráð opinber gengisskráningarvísitala. Þetta er gert um kl. 14:15 á mið-evrópskum tíma (e. Central European Time) á hverjum degi sem skipulegir gjaldeyrismarkaðir eru almennt starfandi. Viðmiðunargengið birtist opinberlega á heimasíðu bankans um klukkan 16:00 á staðartíma hvern viðskiptadag. Þegar sérstaklega stendur á getur Seðlabankinn tímabundið fellt niður skráningu á gengi krónunnar. 

Hinn 1. febrúar 2018 hóf Seðlabanki Evrópu að skrá gengi íslensku krónunnar að nýju, en því var hætt 3. desember 2008. Gengisskráningu Seðlabanka Evrópu má sjá hér á vefsíðu Seðlabanka Evrópu.

Gengi annarra gjaldmiðla má finna á ýmsum vefsíðum, t.d. oanda.com. Seðlabanki Íslands ber enga ábyrgð á upplýsingum sem er að finna á slíkum vefsíðum eða notkun aðila á þeim auk þess sem minnt er á almennan fyrirvara um áreiðanleika upplýsinga á vefnum, samanber það sem segir á síðu um höfundarétt og afsal ábyrgðar.

Upplýsingar um gengi gjaldmiðla er einnig hægt að nálgast á XML- formi.

 

 

Sýna allt

  • Leiðréttingar