logo-for-printing

Seðlar í gildi

Seðlabanki Íslands hefur einkarétt á því að gefa út gjaldmiðil Íslands. Seðlabankinn leggur áherslu á trúverðugleika íslenskra peninga, m.a. með ýmsum öryggisþáttum í seðlum. Öryggisþættirnir auðvelda greiningu á seðlum og gera fölsun erfiðari.

500 króna seðill1000 króna seðill2000 króna seðill5 þúsund króna seðill10 þúsund króna seðill

Sýna allt

  • 10.000 kr.

  • 5.000 kr.

  • 2.000 kr.

  • 1.000 kr.

  • 500 kr.

Öryggisþættir í seðlum

Öryggisþættir hafa verið til staðar í seðlum í mörg hundruð ár. Einn fyrsti öryggisþátturinn í seðlum var handskrifuð undirskrift, en margir þættir hafa bæst við, svo sem sérunninn pappír, vatnsmerki, öryggisþráður og upphleypt prentun. Síðustu ár hafa seðlabankar sett í umferð nýja seðla með fleiri og fullkomnari öryggisþáttum. Einnig hafa nokkrir seðlabankar uppfært eldri seðla sína í sama tilgangi. Í töflu hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir öryggisþætti íslenskra seðla í umferð í dag.

 

Sýna allt

  • 10.000 kr. öryggisþættir

  • 5.000 kr. öryggisþættir

  • 2.000 kr. öryggisþættir

  • 1.000 kr. öryggisþættir

  • 500 kr. öryggisþættir

 

ÖRYGGISÞÆTTIR

500
breyttur
1.000
breyttur
2.000
5.000
breyttur
10.000
Vatnsmerki með andlitsmynd * * * * *
Öryggisþráður * * * * *
Upphleypt prentun á báðum hliðum * * * * *
Númer til hægri á framhlið sjálflýsandi undir útfjólubláu ljósi * * * * *
Númer til vinstri á framhlið og áritun bankastjóra sjálflýsandi undir útfjólubláu ljósi  
 
*  

Lína með örletri * * * * *
Örletur í tölum * * * * *
Málmþynna  
*  
* *
Öryggisþráður með texta * *  
*
Bjart vatnsmerki  
 
 
* *
Smáletur * *  
* *
Lýsandi reitur * *  
* *
Vatnsmerki í hornum * *
 


*
Blindramerki |
||

 D

|||
||||

Optiks öryggisþráður í tíu þúsund króna seðli:

Optiks öryggisþráður í tíu þúsund króna seðli er samsettur úr mörgum öryggisþáttum. Hann er 18 millimetra breiður öryggisþráður. Í öryggisþræðinum má finna texta. Undir útfjólubláu ljósi birtast tveir sjálflýsandi borðar. Í þræðinum er gluggi.