Fara beint í Meginmál
6988 niðurstöður fundust
Fjöldi á síðu
4. júní 2026

Á fyrsta ársfjórðungi 2026 var 32,1 ma.kr. halli á viðskiptajöfnuði við útlönd eða 2,5% af landsframleiðslu. Vöruskiptajöfnuður mældist neikvæður um 23,4 ma.kr. en 29,3 ma.kr. afgangur var á þjónustujöfnuði. Halli af frumþáttatekjum nam 20,6 ma.kr. og 17,3 ma.kr. af rekstrarframlögum. Hrein erlend staða þjóðarbúsins versnaði um 2,1% af landsframleiðslu milli fjórðunga og mælist jákvæð um 42,9% af landsframleiðslu í lok ársfjórðungsins.

Peningastefna
3. júní 2026

Í samræmi við starfsreglur peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands er hér birt fundargerð nefndarinnar, en fundargerðina skal birta tveimur vikum eftir að ákvörðun nefndarinnar er kynnt.

3. júní 2026

Til að auka sveigjanleika í innlendri greiðslumiðlun og draga úr líkum á að truflanir á netsambandi hindri viðskipti verður almenningi senn gert kleift að greiða með greiðslukortum hér á landi, þ.e. debet- og kreditkortum, þótt nettenging rofni.

Rit og skýrslur
3. júní 2026

Ritið Álagspróf 2026 hefur verið birt á vef Seðlabanka Íslands. Í ritinu eru niðurstöður álagsprófs á kerfislega mikilvæga banka kynntar og fjallað um áhrif af breyttu regluverki við mat á áhættu útlána banka. Einnig er fjallað um sjónarmið og mælikvarða sem litið er til við kvörðun sviðsmynda fyrir kerfisleg álagspróf Seðlabanka Íslands.

Rit og skýrslur
3. júní 2026

Seðlabanki Íslands hefur gefið út sérrit um viðbúnað fjármálakerfisins við alvarlegum rekstrartruflunum. Ritið er liður í að skilgreina frekar þau atriði sem huga þarf að við viðbúnað kerfisins til að halda uppi þeirri grunnþjónustu sem samfélagið reiðir sig á, svo sem greiðslumiðlun, uppgjör viðskipta, aðgengi heimila og fyrirtækja að fjármunum og geta þeirra til móttöku og greiðslu fjármuna.

3. júní 2026

Fjármálakerfið hér á landi er traust og vel í stakk búið til að mæta ófyrirséðum áföllum. Fjárhagsstaða kerfislega mikilvægra banka er sterk og aðgengi þeirra að markaðsfjármögnun greitt. Viðvarandi óvissa í alþjóðlegum efnahagsmálum, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á viðnámsþrótt fjármálakerfisins á komandi misserum. Skuldahlutföll heimila og fyrirtækja eru almennt lág og vanskil lítil. Álagspróf Seðlabanka Íslands bendir til þess að stóru bankarnir þrír geti staðið af sér verulegt áfall án þess að skerða um of framboð lánsfjár til viðskiptavina.

3. júní 2026

Yfirlýsing fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands var birt kl. 8:30 í dag, 3. júní 2026. Ritin Álagspróf og Viðbúnaður fjármálakerfisins við alvarlegum rekstrartruflunum verður birt á vef bankans klukkan 8:35.

2. júní 2026

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri flutti erindi á ráðstefnu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum í dag, 2. júní. Ráðstefnan var haldin á  vegum fjármála- og efnahagsráðuneytisins en tilefni hennar var útgáfa skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum sem samin var af hópi erlendra sérfræðinga.

Peningastefna
1. júní 2026

Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu flutti erindi á alþjóðlegri ráðstefnu í Hörpu sem Seðlabanki Íslands stóð fyrir í samstarfi við The Center for International Macroeconomics við Northwestern-háskóla í Illinois.

Peningastefna
28. maí 2026

Karen Áslaug Vignisdóttir, aðalhagfræðingur og framkvæmdastjóri hagfræði og peningastefnu í Seðlabanka Íslands, kynnti nýlega efni nýútgefinna Peningamála 2026/2 á fundum í fimm fjármálafyrirtækjum, þ.e. Landsbankanum, Íslandsbanka, Arion banka, Kviku banka og Arctica Finance. Í kynningunum greindi Karen frá ýmsum atriðum varðandi efnahagsumsvif og verðbólgu.