Seðlabanki Íslands hefur birt yfirlit yfir árleg áhrif heildarkostnaðar á ávöxtun íslenskra sjóða. Yfirlitinu er ætlað að auðvelda neytendum að bera saman kostnað einstakra sjóða og átta sig á áhrifum kostnaðar á ávöxtun fjárfestingar.
Í yfirlitinu eru upplýsingar um inngöngukostnað og áætluð árleg áhrif kostnaðar á ávöxtun, miðað við eins árs fjárfestingartíma og ráðlagðan fjárfestingartíma. Þar er einnig tengill á lykilupplýsingaskjal hvers sjóðs. Við samanburð er mikilvægt að líta einnig til fjárfestingarstefnu, áhættuvísis og ráðlagðs fjárfestingartíma sjóðanna og fleiri atriða sem koma fram í lykilupplýsingaskjölum og útboðslýsingu.
Yfirlitið og lykilupplýsingaskjöl sem þar er vísað á miðast við 9. nóvember 2026. Breytingar á skjölunum eftir þann tíma endurspeglast ekki í yfirlitinu eða meðfylgjandi skjölum.
Hér má finna yfirlitið yfir árleg áhrif kostnaðar á ávöxtun:
Yfirit yfir árleg áhrif kostnaðar á ávöxtun íslenskra sjóða fyrir almenna fjárfesta
Samhliða yfirlitinu hefur Seðlabankinn birt nýtt fræðsluefni um sjóði og hollráð um lestur lykilupplýsingaskjala fyrir neytendur.
Hlekkur á fræðslu um sjóði:
Fjármálagerningar
Hlekkur á hollráð um lestur lykilupplýsingaskjala:
Lykilupplýsingaskjöl