logo-for-printing

21. mars 2024

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 03/2024

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 02/2024 dagsettri 20. febrúar sl. þar sem að engar breytingar hafa átt sér stað á meginvöxtum bankans síðan þá.

Dráttarvextir eru því að sama skapi óbreyttir og verða áfram 17,00% fyrir tímabilið 1. - 30. apríl 2024.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. apríl 2024:

  • Vextir óverðtryggðra útlána 9,45% - (óbreyttir)
  • Vextir verðtryggðra útlána 3,50% - (óbreyttir)
  • Vextir af skaðabótakröfum 6,30% - (óbreyttir)

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 03/2024


Til baka