logo-for-printing

05. mars 2024

Halli á viðskiptajöfnuði 28,6 ma.kr. á fjórða ársfjórðungi 2023 – hrein staða við útlönd jákvæð um 37,7% af VLF

Bygging Seðlabanka Íslands

Á fjórða ársfjórðungi 2023 var 28,6 ma.kr. halli á viðskiptajöfnuði við útlönd. Það er 107,1 ma.kr. lakari niðurstaða en ársfjórðunginn á undan og 0,3 ma.kr. lakari en á sama fjórðungi árið 2022. Afgangur á viðskiptajöfnuði á árinu 2023 í heild nam 41,4 ma.kr. samanborið við 65,2 ma.kr. halla árið á undan. Í lok ársfjórðungsins var hrein staða við útlönd jákvæð um 1.614 ma.kr. eða 37,7% af vergri landsframleiðslu (VLF) og batnaði um 326 ma.kr. eða 7,6% af VLF á fjórðungnum.

Sjá hér fréttina í heild:  Halli á viðskiptajöfnuði 28,6 ma.kr. á fjórða fjórðungi 2023 – hrein staða við útlönd jákvæð um 37,7% af VLF. Frétt nr. 5/2024, 5. mars 2024.

 


Til baka