logo-for-printing

09. apríl 2024

Stakkur Rekstrarfélag ehf. skráð sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða

Bygging Seðlabanka Íslands
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands skráði Stakk Rekstrarfélag ehf. sem rekstraraðila sérhæfðra sjóða hinn 26. mars 2024, sbr. 7. gr. laga nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Í skráningunni felst heimild rekstraraðila til að reka sérhæfða sjóði að því gefnu að verðmæti heildareigna í rekstri aðila fari ekki umfram þau mörk sem kveðið er á um í 1. mgr. 6. gr. laga nr. 45/2020.
Til baka