logo-for-printing

05. janúar 2024

Seðlabanki Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrk tengdan nafni Jóhannesar Nordals

Bygging Seðlabanka Íslands

Auglýst er eftir umsóknum um styrk sem tengdur er nafni Jóhannesar Nordals og veittur er af Seðlabanka Íslands.

Tilgangur styrksins, sem veittur er árlega, er að styðja framtak sem miðar að því að varðveita og miðla menningarverðmætum sem núverandi kynslóð hefur fengið í arf.

Styrkfjárhæðin nemur fimm milljónum króna og verður henni úthlutað í maí 2024. Heimilt er að skipta fjárhæðinni á milli tveggja eða fleiri umsækjenda.

Umsóknarfrestur er til og með 15. mars 2024. Sótt er um styrkinn með útfyllingu eyðublaðs hér: Þjónustugátt Seðlabankans

Nánari upplýsingar: Sigrún María Einarsdóttir á skrifstofu seðlabankastjóra í netfanginu sedlabanki@sedlabanki.is eða í síma 569-9600.


Til baka