
Fjármálaeftirlit

Í ritinu Fjármálaeftirlit, sem gefið er út árlega, er skýrt frá því hvernig Seðlabankinn vinnur að þeim verkefnum sem honum eru falin á sviði fjármálaeftirlits í lögum. Þar eru eftirlitsskyldir aðilar ennfremur upplýstir um helstu áherslur í yfirstandandi verkáætlun á sviði fjármálaeftirlits og greint er frá nýlegum og væntanlegum breytingum í réttarheimildum fjármálamarkaðar.
Fjármálaeftirlit er einnig gefið út á ensku undir heitinu Financial Supervision.
Upplýsingarit

Sérrit

Seðlabankinn birtir greinargerðir og skýrslur um málaflokka sem tengjast starfsemi hans eftir því sem tilefni gefast til. Undir heitinu Sérrit eru birtar greinargerðir bankastjórnar og viðameiri skýrslur en í Upplýsingariti eru birtar ýmsar upplýsingar tengdar verkefnum bankans.
Peningamál

Í Peningamálum gerir Seðlabankinn grein fyrir horfum í efnahags- og peningamálum. Ritið kemur út fjórum sinnum á ári.
Í byrjun maí og byrjun nóvember er þar birt verðbólgu- og þjóðhagsspá ásamt ýtarlegri umfjöllun um þróun og horfur í efnahags- og peningamálum. Í febrúar og ágúst er birt uppfærð verðbólgu- og þjóðhagsspá með styttri umfjöllun um þróun og horfur efnahags- og peningamála. Greiningin og spáin gegnir síðan mikilvægu hlutverki við mótun peningastefnunnar.
Ritið er einnig gefið út á ensku undir heitinu Monetary Bulletin.
Hagvísar

Í Hagvísum Seðlabanka Íslands birtir bankinn yfirlit yfir þróun efnahagsmála, safn hagvísa og yfirlit yfir stöðu fjármálakerfisins í tíu köflum. Ritið Hagvísar er einnig gefið út á ensku undir heitinu Economic Indicators.
Frá árinu 2002 hafa Hagvísar komið út sem rit en nú vinnur Seðlabankinn að því að birta gagnvirka Hagvísa með stafrænum hætti og var fyrsta útgáfan af þeim birt í lok júní 2022.
Gagnvirkir Hagvísar
Með nýjum gagnvirkum Hagvísum verður notendum gert kleift að nálgast og rýna gögnin með öðrum hætti en áður með því að t.d. fletta á milli mynda og velja staka mynd til frekari skoðunar.
Vakin er athygli á að gagnvirkir Hagvísar eru í fyrstu útgáfu eingöngu aðgengilegir á íslensku en ensk útgáfa mun verða í boði eftir að fullri innleiðingu lýkur. Samhliða þessari útgáfu verður hefðbundin pdf-útgáfa einnig aðgengileg en gagnvirkir Hagvísar koma til með að leysa pdf-útgáfuna af hólmi. Sé ósamræmi á milli gagnvirku útgáfunnar og pdf- útgáfunnar gildir hin hefðbundna pdf-útgáfa.
Gagnvirkir Hagvísar Seðlabanka Íslands
Fjármálastöðugleiki

Fjármálainnviðir

Efnahagsmál

Ársskýrslur
