logo-for-printing

02. desember 2013

Greiðslujöfnuður við útlönd og erlend staða þjóðarbúsins á þriðja ársfjórðungi 2013

Á vef Seðlabanka Íslands hafa nú verið birt bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á þriðja ársfjórðungi 2013 og um stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins.

Viðskiptajöfnuður mældist hagstæður um 53,9 ma.kr. á ársfjórðungnum samanborið við 9,3 ma.kr. óhagstæðan  jöfnuð fjórðunginn á undan. Afgangur á vöruskiptum við útlönd var 21 ma.kr. en afgangur af þjónustuviðskiptum var 46 ma.kr. Jöfnuður þáttatekna var  neikvæður um 13,2 ma.kr. Viðskiptajöfnuður án áhrifa innlánsstofnana í slitameðferð var hagstæður um 62,5 ma.kr. samanborið við hagstæðan jöfnuð er nam 2,6 ma.kr. fjórðunginn á undan.

Sjá hér fréttina í heild í pdf-skjali:

Greiðslujöfnuður við útlönd og erlend staða þjóðarbúsins á þriðja fjórðungi ársins 2013.pdf

Sjá hér einnig frétt um undirliggjandi erlenda stöðu: Undirliggjandi erlend staða þjóðarbúsins í lok þriðja ársfjórðungs 2013

 

Frétt nr. 39/2013

2. desember 2013

Til baka