logo-for-printing

02. desember 2013

Undirliggjandi erlend staða þjóðarbúsins í lok þriðja ársfjórðungs 2013

Á vef Seðlabanka Íslands hafa nú verið birt bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á þriðja ársfjórðungi 2013 og um stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins.

Til frekari upplýsinga birtir Seðlabankinn samhliða mat á undirliggjandi hreinni erlendri stöðu þjóðarbúsins. Við mat á undirliggjandi stöðu er lagt mat á þá stöðu sem mun birtast þegar innlendar og erlendar eignir innlánsstofnana í slitameðferð hafa verið seldar og andvirði þeirra ráðstafað til kröfuhafa. Jafnframt er horft framhjá nokkrum innlendum fyrirtækjum, öðrum en fjármálafyrirtækjum, sem unnið er að slitum á (sjá nánari útskýringar í Sérriti 9: Undirliggjandi erlend staða og greiðslujöfnuður, sem gefið var út 18. mars sl.). Við mat á undirliggjandi hreinni stöðu þjóðarbúsins er ekki lengur horft framhjá áhrifum lyfjafyrirtækisins Actavis.

Sjá fréttina í heild í meðfylgjandi pdf-skjali:

Undirliggjandi erlend staða þjóðarbúsins í lok þriðja ársfjórðungs 2013.pdf

Sjá hér frétt um greiðslujöfnuð við útlönd: Greiðslujöfnuður við útlönd á þriðja ársfjórðungi og erlend staða þjóðarbúsins

 

Frétt nr. 40/2013

2. desember 2013

Til baka