logo-for-printing

06. janúar 2009

Gengisvísitölur

Eins og áður hefur verið greint frá hætti Seðlabanki Íslands að reikna og birta svonefnda gengis­skráningarvísitölu nú um áramótin. Hins vegar verður haldið áfram að birta á heima­síðu bankans fjórar aðrar gengis­vísitölur svo sem gert hefur verið sl. tvö ár, sbr. frétt bankans frá 30. nóvember 20061

 

Ákveðið hefur verið að breyta grunni einnar þeirra fjögurra þannig að 2. janúar 2009 taki hún sama gildi og gengis­skrán­ingarvísitalan. Þannig myndast framhald þeirrar talnaraðar sem oft er vitnað til þegar fjallað er um gengi. Sú sem varð fyrir valinu nefnist gengisvísitala með þröngri viðskiptavog. Af vísitölunum fjórum er hún líkust gömlu vísi­tölunni að uppbyggingu.

Þröng viðskiptavog er reiknuð út frá vöruviðskiptum við öll lönd sem vega að minnsta kosti 1% í vöruviðskiptum Íslands undangengin þrjú ár. Einnig er tekið tillit til hlutfalls ferðamennsku í þjónustu­við­skiptum. Skipting tekna af ferðamennsku er áætluð út frá landa­skipt­ingu gistinátta erlendra ferðamanna á hótelum og gistiheimilum, en gjöldin byggja á landaskiptingu kreditkortanotkunar Íslendinga erlendis.

 

 

1. Sbr. einnig greinargerð hér:
Uppfærsla gengisvoga og nýjar gengisvísitölur

Nr. 1/2009

6. janúar 2009

Til baka