13.03.2018

Málstofa um áhrif Airbnb á íslenskan húsnæðismarkað

Málstofa um þetta efni verður haldin í Sölvhóli, fundarherbergi í Seðlabankanum, þriðjudaginn 13. mars kl. 15:00.

Frummælendur: Lúðvík Elíasson og Önundur Ragnarsson, Seðlabanka Íslands

Ágrip: Á undanförnum árum hefur færst í vöxt að íbúðarhúsnæði sé nýtt til skammtímaleigu fyrir ferðamenn. Gögn frá AirDNA um bókanir á vef Airbnb eru notuð til að búa til mælikvarða á fjölda íbúða sem eru fyrst og fremst nýttar í skammtímaleigu og nýtast því ekki lengur sem íbúðarhúsnæði fyrir aðra. Þessar upplýsingar eru notaðar til að meta áhrif Airbnb á íbúðaverð. Þá er fjöldi íbúða sem bætist árlega við þann fjölda sem nýttur er til skammtímaleigu borinn saman við fjölda nýrra íbúða sem eru byggðar á árinu. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til að árleg hækkun raunverðs íbúðarhúsnæðis sem rekja megi til aukinna umsvifa Airbnb á síðustu þremur árum sé um 2%, en það svarar til um 15% af þeirri hækkun sem orðið hefur á íbúðaverði á þeim tíma. Fjölgun Airbnb íbúða á þann mælikvarða sem hér er notast við svaraði til helmings til tveggja þriðju þeirra íbúða sem lokið var við að byggja á árinu 2016 á höfuðborgarsvæðinu.

Til baka