06.03.2018

Málstofa um verðbólgu og trúverðugleika peningastefnu

Hjöðnun verðbólgu og aukinn trúverðugleiki peningastefnunnar
Málstofa um þetta efni verður haldin í Sölvhóli, fundarherbergi í Seðlabankanum, þriðjudaginn 6. mars kl. 15:00.

Frummælandi: Þórarinn G. Pétursson, Seðlabanka Íslands


Ágrip: Í fyrirlestrinum er fjallað um mikilvægi bættrar kjölfestu langtímaverðbólguvæntinga við að skýra af hverju verðbólga hafi verið lítil og stöðug undanfarin ár þrátt fyrir kröftugan efnahagsbata. Mat á framsýnni Phillips-kúrfu bendir til þess að kerfisbreyting hafi orðið á sambandi verðbólgu og lykil áhrifaþátta hennar árið 2012 og ólínulegar matsaðferðir gefa til kynna að kerfisbreytingin tengist hraðari lækkun langtímaverðbólguvæntinga en mælist með gögnum um verðbólguvæntingar á fjármálamarkaði. Lækkun verðbólguvæntinga er, ásamt mikilli lækkun innflutningsverðs, meginskýring hjöðnunar verðbólgu frá árinu 2012. Fyrrgreind kerfisbreyting er einnig mikilvæg skýring á því að spár hafa almennt ofspáð verðbólgu undanfarin ár. Þá eru lækkandi langtímaverðbólguvæntingar einnig mikilvæg ástæða þess að ekki þurfti efnahagssamdrátt til að framkalla þessa verðbólguhjöðnun eins og jafnan gerist.

Til baka