19.10.2017

Málstofa um áhrif bankaráðgjafar

Á málstofunni mun Úlf Níelsson, dósent í Copenhagen Business School, fara yfir nýlega rannsókn sem sýnir áhrif bankaráðgjafar á fjárfestingarval einstaklinga í Danmörku. Niðurstöðurnar sýna að bankarnir sannfæra einstaklinga um að kaupa í verðbréfasjóðum sem tengjast bönkunum beint. Þetta er helsti áhrifavaldurinn á val á sjóði. Hefðbundnari skýringar líkt og söguleg ávöxtun sjóða og þóknanir hafa minni áhrif.

Málstofan hefst kl 15:00 og verður haldin í fundarsalnum Sölvhóli á fyrstu hæð í byggingu Seðlabankans við Kalkofnsveg 1 í Reykjavík. Gengið er inn frá Arnarhóli.

Sjá hér greinina: Switching bank: Banking-customer relationships and retail investors' choice of mutual funds. May 2017. Bjarne Florentsen, Úlf Níelsson, Peter Raahauge og Jesper Rangvid.

Til baka