logo-for-printing

15.09.2020

Varaseðlabankastjóri með erindi á fundi hjá Samiðn

Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu, flutti í dag, þriðjudaginn 15. september, erindi á fundi hjá Samiðn um stöðu efnahagsmála. Kynning Rannveigar bar yfirskriftina Efnahagshorfur á tímum heimsfaraldurs og fjallaði um efnahagshorfur og aðgerðir Seðlabanka Íslands í ljósi COVID-19 farsóttarinnar.

Hér má finna kynningarefni sem Rannveig studdist við á fundinum: Efnahagshorfur á tímum heimsfaraldurs
Til baka