logo-for-printing

13.11.2019

Kynning aðalhagfræðings á efni Peningamála

Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands, framkvæmdastjóri hagfræði og peningastefnu og meðlimur í peningastefnunefnd, hefur kynnt efni nýlegra Peningamála á fundum með starfsfólki fjármálafyrirtækja síðustu daga, þ.e. Kviku, Arion banka og Íslandsbanka. Í kynningunni fór hann meðal annars yfir áhrif viðskiptadeilu Bandaríkjanna og Kína, þróun hagvaxtar, vaxtaþróun, útlán, atvinnu, og þróun og horfur um verðbólgu.

Kynningarefni sem Þórarinn studdist við er aðgengilegt hér:  Peningamál 2019/4. 
Til baka