logo-for-printing

08. maí 2024

Peningamál birt

Ritið Peningamál 2024/2 hefur verið birt hér á vef Seðlabanka Íslands. Í Peningamálum gerir Seðlabankinn grein fyrir horfum í efnahags- og peningamálum. Ritið kemur út fjórum sinnum á ári.

Í byrjun maí og byrjun nóvember er þar birt verðbólgu- og þjóðhagsspá ásamt ýtarlegri umfjöllun um þróun og horfur í efnahags- og peningamálum. Í febrúar og ágúst er birt uppfærð verðbólgu- og þjóðhagsspá með styttri umfjöllun um þróun og horfur efnahags- og peningamála. Greiningin og spáin gegnir síðan mikilvægu hlutverki við mótun peningastefnunnar.

Sjá hér Peningamál 2024/2

Sjá hér: Yfirlit yfir efni Peningamála.

Sjá hér: fyrri rit Peningamála.

Ritið er einnig gefið út á ensku undir heitinu Monetary Bulletin.
Til baka