logo-for-printing

20. desember 2023

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 12/2023

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 11/2023 dagsettri 20. nóvember sl. þar sem að engar breytingar hafa átt sér stað á meginvöxtum bankans síðan þá.

Dráttarvextir eru því að sama skapi óbreyttir og verða áfram 17,00% fyrir tímabilið 1. - 31. janúar 2024.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. janúar 2024:

• Vextir óverðtryggðra útlána 9,60% - (óbreyttir)
• Vextir verðtryggðra útlána 3,50% - (fara úr 3,15%)
• Vextir af skaðabótakröfum 6,40% - (óbreyttir)

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 12/2023


Til baka