logo-for-printing

01. nóvember 2023

Fundargerð fjármálastöðugleikanefndar frá september 2023

Fjármálastöðugleikanefnd ásamt ritara nefndarinnar
Fjármálastöðugleikanefnd ásamt ritara nefndarinnar
Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands tekur ákvarðanir um beitingu stjórntækja bankans varðandi fjármálastöðugleika. Á fundi nefndarinnar 18. og 19. september 2023 voru horfur í efnahagsmálum kynntar fyrir nefndinni auk stöðu fjármálakerfisins og innviða greiðslumiðlunar. Nefndin ræddi stöðu og horfur fyrir fjármálastöðugleika og helstu áhættuþætti, svo sem þróun efnahagsmála, áhættu í rekstri fjármálafyrirtækja og fjármálakerfisins, þróun á innlendum fjármálamörkuðum, skuldsetningu heimila og fyrirtækja, stöðu á fasteignamarkaði, virkni lánþegaskilyrða, eiginfjár- og lausafjárstöðu fjármálafyrirtækja og fjármálasveifluna. Jafnframt fékk nefndin kynningu á aðferðafræði við mat á kerfislega mikilvægum fjármálafyrirtækjum auk kynningar á niðurstöðum úr árlegu álagsprófi á kerfislega mikilvæga banka (KMB).

Fjármálastöðugleikanefnd ákvað að halda gildi sveiflujöfnunaraukans óbreyttu en samkvæmt ákvörðun nefndarinnar í mars sl. mun hann hækka úr 2% í 2,5% 15. mars 2024.

Sjá fundargerðina í heild hér: Fundargerð fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands (18. fundur). Birt 1. nóv. 2023.

Sjá hér nánari upplýsingar um nefndina og störf hennar: Fjármálastöðugleikanefnd
Til baka