logo-for-printing

19. október 2023

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 10/2023

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 09/2023 dagsettri 19. september sl. þar sem að meginvextir bankans eru óbreyttir síðan þá.
Dráttarvextir eru því að sama skapi óbreyttir og verða áfram 17,00% fyrir tímabilið 1. - 30. nóvember 2023.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. nóvember 2023:

• Vextir óverðtryggðra útlána 9,55% - (óbreyttir)
• Vextir verðtryggðra útlána 3,15% - (hækka úr 2,65%)
• Vextir af skaðabótakröfum 6,37% - (óbreyttir)

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 10/2023


Til baka