logo-for-printing

29. september 2023

Hagvísar Seðlabanka Íslands birtir á gagnvirku formi

Hagvísar Seðlabanka Íslands hafa verið birtir á gagnvirkan hátt á vef bankans. Í þeim er ársfjórðungslegt yfirlit yfir þróun efnahagsmála, safn hagvísa og stöðu fjármálakerfisins. Hagvísarnir eru einnig gefnir út á ensku undir heitinu Economic Indicators.

Gagnvirkir Hagvísar voru fyrst birtir á vef bankans í júní í 2022 á íslensku. Með þessu var stigið tímamótaskref í stafrænni vegferð bankans í átt að bættri miðlun upplýsinga. Frá og með júní 2023 bættist svo gagnvirk útgáfa á ensku. Þá var útgáfunni á PDF-formi einnig hætt.

Gögn að baki myndum verða áfram aðgengileg með sama hætti og áður í Excel.

Ritið má nálgast hér: Hagvísar Seðlabanka Íslands

Enska útgáfuna má nálgast hér: Economic indicators

Sjá upplýsingar um gögn hér: Gögn með Hagvísum

Fyrri rit eru aðgengileg hér: Útgefin rit Seðlabanka Íslands

Sjá grein um útgáfu gagnvirkra Hagvísa sem birtir voru fyrst hinn 30. júní 2022 í Kalkofninum: Gagnvirkir Hagvísar og stafræn vegferð Seðlabankans


Til baka