logo-for-printing

20. september 2023

Fjármálastöðugleiki birtur

Ritið Fjármálastöðugleiki 2023/2 hefur verið birt á vef Seðlabanka Íslands. Í Fjármálastöðugleika er tvisvar á ári birt yfirlit yfir stöðu fjármálakerfisins, þ.e. um styrk þess og hugsanlega veikleika og áhættu sem því kann að vera búin bæði af þjóðhagslegum og rekstrarlegum toga. Í ritinu greinir Seðlabankinn frá því hvernig hann vinnur að verkefnum sem varða virkt og öruggt fjármálakerfi. Fjármálastöðugleiki er einnig gefinn út á ensku undir heitinu Financial Stability.

Sjá hér: Fjármálastöðugleiki 2023/2.
Sjá hér síðu yfir útgefin rit.
Sjá hér síðu fyrir efni um fjármálastöðugleika.
Sjá hér upplýsingar um gögn í Fjármálastöðugleika 2023/2. 
Til baka