logo-for-printing

20. júlí 2023

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 07/2023

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 06/2023 dagsettri 21. júní sl. þar sem að meginvextir bankans eru óbreyttir síðan þá. Dráttarvextir eru því að sama skapi óbreyttir og verða áfram 16,50% fyrir tímabilið 1. - 31. ágúst 2023.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir eru einnig óbreyttir og verða því áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. ágúst 2023:

• Vextir óverðtryggðra útlána 9,25%
• Vextir verðtryggðra útlána 2,65%
• Vextir af skaðabótakröfum 6,17%

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 07/2023

Til baka