logo-for-printing

12. apríl 2023

Fundargerð fjármálastöðugleikanefndar 13. og 14. mars

Fjármálastöðugleikanefnd
Fjármálastöðugleikanefnd
Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands tekur ákvarðanir um beitingu stjórntækja bankans varðandi fjármálastöðugleika. Á fundi nefndarinnar í mars sl. var rætt um stöðu og horfur fyrir fjármálastöðugleika og helstu áhættuþætti, svo sem þróun efnahagsmála, áhættu í rekstri fjármálafyrirtækja og fjármálakerfisins, þróun á innlendum fjármálamörkuðum, skuldsetningu heimila og fyrirtækja, stöðu á fasteignamarkaði, virkni lánþegaskilyrða, eiginfjár- og lausafjárstöðu fjármálafyrirtækja og fjármálasveifluna. Jafnframt ræddi nefndin um netöryggi og fékk upplýsingar um TIBER-verkefnið og aðgerðir sem ráðist hefur verið í til að efla netöryggi í greiðslumiðlun.

Eins og fram kom í yfirlýsingu nefndarinnar sem birt var 15. mars sl. ákvað nefndin á fundi sínum að hækka gildi sveiflujöfnunarauka úr 2% í 2,5%. Ákvörðun nefndarinnar tekur gildi 15. mars 2024.

Þá áréttaði nefndin mikilvægi þess að koma á fót innlendri óháðri smágreiðslulausn og að niðurstaða fáist í hvaða leið verður fyrir valinu innan árs.

Sjá fundargerðina í heild hér: Fundargerð fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands (16. fundur). Birt 12. apríl 2023.

Sjá hér nánari upplýsingar um nefndina og störf hennar: Fjármálastöðugleikanefnd
Til baka