logo-for-printing

08. mars 2023

Skýrsla fjármálastöðugleikanefndar kynnt í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis

Skýrsla fjármálastöðugleikanefndar fyrir árið 2022 verður kynnt og til umræðu í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis á morgun, fimmtudaginn 9. mars 2023, klukkan 9:10. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika verða gestir á fundinum.

Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás þingsins.

Nánari upplýsingar eru aðgengilegar á vef Alþingis og vef Seðlabankans:

    - Upplýsingar á vef Alþingis um opinn kynningarfund um skýrslu fjármálastöðugleikanefndar fyrir árið 2022

    - Skýrsla fjármálastöðugleikanefndar fyrir árið 2022.

Til baka