![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
Listi yfir starfsheiti sem teljast til háttsettra opinberra starfa uppfærður
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/Sedlabanki_hus_12.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur uppfært lista á vef Seðlabankans yfir starfsheiti sem teljast til háttsettra opinberra starfa. Er það gert í samræmi við 10. gr. reglugerðar nr. 1420/2020, en samkvæmt reglugerðinni skal fjármálaeftirlitið halda lista yfir þau starfsheiti hér á landi sem teljast til háttsettra opinberra starfa og birta opinberlega á vefsvæði bankans og uppfæra eigi sjaldnar en árlega.
Á listanum koma fram starfsheiti og nafn stofnunar, samtaka, fyrirtækis eða stjórnmálaflokks, eftir því sem við á. Listinn byggir á ákvæðum reglugerðarinnar og á upplýsingum frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, utanríkisráðuneytinu og stjórnmálaflokkum sem eiga kjörna fulltrúa á Alþingi, sbr. 11. gr. reglugerðarinnar.
Að þessu sinni er um að ræða breytingar á lista yfir fyrirtæki í eigu íslenska ríkisins og á fyrirsvarsmönnum alþjóðasamtaka og alþjóðastofnana, sbr. 8. og 9 gr. reglugerðar nr. 1420/2020. Þá er rétt að geta þess nýlega voru gerðar breytingar á reglugerð nr. 1420/2020. Nánari upplýsingar um það að hverju breytingarnar lúta má sjá nánar hér.
Sjá nánar: Listi yfir starfsheiti sem teljast til háttsettra opinberra starfa.