logo-for-printing

14. febrúar 2023

Nýr tíu þúsund króna seðill í umferð

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Erla Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri fjárhagssviðs Seðlabanka Íslands, með einn af seðlunum.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Erla Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri fjárhagssviðs Seðlabanka Íslands, með einn af seðlunum.

Nýir tíu þúsund króna seðlar með undirskrift Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra hafa verið settir í umferð og eru þetta fyrstu seðlarnir með undirskrift hans sem gefnir hafa verið út. Ásgeir er 20. seðlabankastjórinn sem skrifar undir íslenska peningaseðla en undirskrift seðlabankastjóra á hverjum seðli er eitt af öryggisatriðum við gerð þeirra.

Ýmis fleiri öryggisatriði eru í núgildandi íslenskum seðlum sem ætlað er að skapa traust til seðlanna. Meðal þeirra er vatnsmerki með andlitsmynd af Jóni Sigurðssyni, fyrrum forseta Alþingis, öryggisþráður úr málmi, sjálflýsandi númer og myndir sem koma í ljós undir útfjólubláu ljósi, örletur af ýmsu tagi, málmþynna í tilteknum seðlum, optiks, öryggisþráður með texta, smáletur, lýsandi reitur, vatnsmerki í hornum og blindramerki.

Seðlarnir sem nú eru í gildi eru hannaðir af Kristínu Þorkelsdóttur ásamt Stephen A. Fairbairn. Seðlaröðin var fyrst sett í umferð eftir gjaldmiðilsbreytinguna í ársbyrjun 1981 þegar verðgildi krónunnar var hundraðfaldað.

Nú eru um 80 milljarðar króna í umferð af seðlum og mynt. Af því eru tæplega 50 milljarðar í tíu þúsund króna seðlum. Af mynt eru 4,5 milljarðar króna í umferð. Fjárhæðir seðla sem eru í umferð eru 10.000 krónur, 5.000 krónur, 2.000 krónur, 1.000 krónur og 500 krónur. Tvö þúsund króna seðillinn hefur ekki verið prentaður og settur í umferð lengi. Hann er enn í fullu gildi en tiltölulega lítið er af honum í umferð.

Vel yfir 98% af smásöluviðskiptum fara fram með rafrænum hætti hjá þeim sem versla vikulega eða oftar, þ.e. með greiðslukortum eða öðrum rafgreiðslum, svo sem í gegnum heimabanka, og aðeins um 1,8% með reiðufé. Eftir sem áður hefur hlutur seðla og myntar í umferð verið lítt breyttur sem hlutfall af landsframleiðslu síðasta áratug, eða á bilinu 2-2,5%. Þetta hlutfall er með því lægsta sem þekkist, en var þó enn lægra í tvo áratugi fyrir bankahrunið, eða um 1%. Í hruninu tvöfaldaðist reiðufé í umferð, en slíkt gerist oft á óvissutímum. Enn fremur er líklegt að aukinn straumur ferðamanna til Íslands síðasta áratuginn hafi leitt til aukningar reiðufjár í umferð.

Sjá hér upplýsingar um seðla og mynt á Íslandi: Seðlar og mynt.
Til baka