logo-for-printing

19. janúar 2023

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 01/2023

Bygging Seðlabanka Íslands og Esjan á bakvið

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 12/2022 dagsettri 19. desember sl. þar sem að engin meginvaxtaákvörðun hefur verið síðan þá. Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 13,75% fyrir tímabilið 1. - 28. febrúar 2023.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir breytast aftur á móti og verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 28. febrúar 2023:

• Vextir óverðtryggðra útlána verða 7,50% - (voru 7,25%
• Vextir verðtryggðra útlána verða 2,60% - (voru 2,35%)
• Vextir af skaðabótakröfum verða 5,00% - (voru 4,83%)

Tilkynning  um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 01/2023


Til baka