logo-for-printing

13. janúar 2023

Skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis

Skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis um störf nefndarinnar á seinni hluta ársins 2022 er nú aðgengileg hér á vef bankans. Viðamikið ítarefni fylgir skýrslunni. 

Lög um Seðlabanka Íslands kveða á um að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skuli gefa Alþingi skýrslu um störf sín tvisvar á ári og að ræða skuli efni skýrslunnar í þeirri þingnefnd sem þingforseti ákveður. Skýrslan hefur verið til umræðu í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis. Frá því að síðasta skýrsla var send Alþingi hefur nefndin haldið þrjá reglulega fundi og var síðasta yfirlýsing nefndarinnar birt 23. nóvember 2022. Eftirfarandi skýrsla fjallar um störf nefndarinnar frá júlí til desember 2022.

Skýrsluna má nálgast hér: Skýrsla peningastefnunefndar til Alþingis fyrir seinni hluta ársins 2022

Fyrri skýrslur um störf peningastefnunefndar má finna hér: Skýrslur peningastefnunefndar til Alþingis


Til baka