logo-for-printing

13. janúar 2023

Seðlabanki Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrk tengdan nafni Jóhannesar Nordals

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Jóhannes Nordal, fyrrverandi seðlabankastjóri. Myndin er tekin við afhendingu á menningarstyrk tengdan nafni Jóhannesar Nordals árið 2022.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Jóhannes Nordal, fyrrverandi seðlabankastjóri. Myndin er tekin við afhendingu á menningarstyrk tengdan nafni Jóhannesar Nordals árið 2022.

Auglýst er eftir umsóknum um styrk sem tengdur er nafni Jóhannesar Nordals og veittur er af Seðlabanka Íslands.

Tilgangur styrksins, sem veittur er árlega, er að styðja framtak sem miðar að því að varðveita og miðla menningarverðmætum sem núverandi kynslóð hefur fengið í arf.

Styrkfjárhæðin nemur fimm milljónum króna og verður henni úthlutað í maí 2023. Heimilt er að skipta fjárhæðinni á milli tveggja eða fleiri umsækjenda.

Umsóknarfrestur er til og með 17. mars 2023. Sótt er um styrkinn með útfyllingu eyðublaðs hér: Þjónustugátt Seðlabankans

Nánari upplýsingar: Hrafnhildur Ýr Bernharðsdóttir á skrifstofu seðlabankastjóra í netfanginu sedlabanki@sedlabanki.is eða í síma 569-9605.

 


Til baka