logo-for-printing

09. janúar 2023

ORCA Capital Partners ehf. skráð sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða

Bygging Seðlabanka Íslands
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands skráði ORCA Capital Partners ehf. sem rekstraraðila sérhæfðra sjóða hinn 6. janúar 2023, sbr. 7. gr. laga nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Í skráningunni felst heimild rekstraraðila til að reka sérhæfða sjóði að því gefnu að verðmæti heildareigna í rekstri aðila fari ekki umfram þau mörk sem kveðið er á um í 1. mgr. 6. gr. laga nr. 45/2020.
Til baka