logo-for-printing

19. desember 2022

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 12/2022

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 11/2022 dagsettri 18. nóvember sl. þar sem að meginvextir bankans hafa hækkað um 0,25 prósentur síðan þá. Dráttarvextir hækka því að sama skapi og verða 13,75% fyrir tímabilið 1. - 31. janúar 2023.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. janúar 2023:

• Vextir óverðtryggðra útlána verða 7,25% - (óbreyttir)
• Vextir verðtryggðra útlána verða 2,35% - (óbreyttir)
• Vextir af skaðabótakröfum verða 4,83% - (óbreyttir)

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 12/2022
Til baka