logo-for-printing

18. júlí 2022

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 07/2022

Bygging Seðlabanka Íslands

 

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur ekki breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 06/2022 dagsett 22. júní sl. þar sem grunnur dráttarvaxta, þ.e. lán gegn veði í 7 daga, er óbreyttur 5,50%.
Dráttarvextir haldast því að sama skapi óbreyttir og verða því áfram 12,50% fyrir tímabilið 1. - 31. ágúst 2022.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir hækka og verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. ágúst 2022:

• Vextir óverðtryggðra útlána verða 6,25% - (voru 5,40%)
• Vextir verðtryggðra útlána verða 1,80% - (voru 1,40%)
• Vextir af skaðabótakröfum verða 4,17% - (voru 3,60%)


Til baka