logo-for-printing

20. júní 2022

Íslensk verðbréf hf. fá heimild til að sinna vörslu verðbréfasjóða

Bygging Seðlabanka Íslands
Hinn 9. júní sl. veitti fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands Íslenskum verðbréfum hf. heimild til að sinna vörslu verðbréfasjóða skv. 44. gr. laga nr. 116/2021 um verðbréfasjóði. Vörsluaðilum verðbréfasjóða er m.a. ætlað að vakta sjóðstreymi verðbréfasjóða og tryggja móttöku fjármuna. Þá varðveita vörsluaðilar fjármálagerninga verðbréfasjóða og tryggja aðgreiningu þeirra í samræmi við lög um markaði fyrir fjármálagerninga.
Íslensk verðbréf hf. hafa starfsleyfi sem verðbréfafyrirtæki. Um starfsheimildir félagsins að öðru leyti vísast til yfirlits á heimasíðu
Til baka