![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
Heildarniðurstöður ársreikninga fjármálafyrirtækja o.fl. 2021
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/sedlabanki35_ISL.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur tekið saman skýrslu með heildarniðurstöðum ársreikninga fyrir árið 2021 hjá fjármálafyrirtækjum, þ.e. viðskiptabönkum, sparisjóðum, lánafyrirtækjum og verðbréfafyrirtækjum, ásamt rekstrarfélögum verðbréfasjóða og rekstraraðilum sérhæfðra sjóða. Í skýrslunni er einnig að finna upplýsingar um heildareignir verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta og heildareignir og hreina eign annarra sérhæfðra sjóða. Jafnframt er í skýrslunni að finna nánar tilteknar upplýsingar um greiðslustofnanir og rafeyrisfyrirtæki.
Heildarniðurstöðu ársreikninga fjármálafyrirtækja o.fl. 2021 er að finna hér.
Á sérstakri síðu er að finna eldri tölulegar upplýsingar af sama tagi: Ársreikningaskýrslur lánastofnana og verðbréfafyrirtækja.