logo-for-printing

26. apríl 2022

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 04/2022

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur ekki breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 03/2022 dagsett 22. mars sl. þar sem að grunnur dráttarvaxta er óbreyttur í 3,50%. Dráttarvextir eru því að sama skapi óbreyttir og verða áfram 10,50% fyrir tímabilið 1. - 31. maí 2022.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. maí 2022:

• Vextir óverðtryggðra útlána verða 4,65% - (voru 4,15%)
• Vextir verðtryggðra útlána verða áfram 1,49%
• Vextir af skaðabótakröfum verða 3,10% - (voru 2,77%)

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 04/2022

Til baka