logo-for-printing

22. mars 2022

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 03/2022

Bygging Seðlabanka Íslands og Esjan á bakvið

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur ekki breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 02/2022 dagsett 21. febrúar sl. þar sem að grunnur dráttarvaxta er óbreyttur í 3,50%. Dráttarvextir eru því að sama skapi óbreyttir og verða áfram 10,50% fyrir tímabilið 1. - 30. apríl 2022.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. apríl 2022:

• Vextir óverðtryggðra útlána 4,15%
• Vextir verðtryggðra útlána lækka úr 1,50% og verða 1,49%
• Vextir af skaðabótakröfum 2,77%

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 03/2022


Til baka