logo-for-printing

07. febrúar 2022

Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofns

Bygging Seðlabanka Íslands
Hér með tilkynnist um yfirfærslu vátryggingastofns frá Codan Forsikring A/S til Chopin Forsikring A/S. Fyrirhuguð yfirfærsla er í samræmi við tilkynningu dagsetta 26. nóvember 2021 frá danska fjármálaeftirlitinu, Finanstilsynet.

Vátryggingartakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (Fjármálaeftirlitsins) vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.

Ekki liggja fyrir staðfestar upplýsingar um að hjá félaginu séu fyrirliggjandi vátryggingarsamningar vegna aðila hér á landi.

Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.

Til baka