logo-for-printing

20. janúar 2022

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 1/2022

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 12/2021 dagsett 22. desember sl. Grunnur dráttarvaxta, þ.e. lán gegn veði í 7 daga, er því óbreyttur 2,75%. Dráttarvextir verða því óbreyttir 9,75% fyrir tímabilið 1. - 28. febrúar 2022.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 28. febrúar 2022:
• Vextir óverðtryggðra útlána verða 4,15% - (voru 3,95%)
• Vextir verðtryggðra útlána verða 1,50%
• Vextir af skaðabótakröfum verða 2,77% - (voru 2,63%)

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 1/2022


Til baka