logo-for-printing

21. desember 2021

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 12/2021

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 11/2021 dagsett 19. nóvember sl. Grunnur dráttarvaxta, þ.e. lán gegn veði í 7 daga, er því óbreyttur 2,75%. Dráttarvextir verða því áfram óbreyttir 9,75% fyrir tímabilið 1. - 31. janúar 2022.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir breytast aftur á móti og verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. janúar 2022:

• Vextir óverðtryggðra útlána verða 3,95% - (voru 3,80%)
• Vextir verðtryggðra útlána verða 1,50% - (voru 1,90%)
• Vextir af skaðabótakröfum verða 2,63% - (voru 2,53%)

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 12/2021


Til baka