logo-for-printing

10. desember 2021

Ný gögn um íslenska banka í evrópskum samanburði

Bygging Seðlabanka Íslands
Evrópska bankaeftirlitsstofnunin (European Banking Authority, EBA) hefur birt upplýsingar um rekstur og efnahag 120 banka á Evrópska efnahagssvæðinu. Birtar eru upplýsingar um hvern og einn banka. Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn eru með í þessum samanburði eins og síðustu ár. Um er að ræða upplýsingar á borð við eigið fé, eiginfjárhlutfall, vogunarhlutfall, vanskilahlutfall, kostnaðarhlutfall o.fl. fyrir tímabilið 1. júlí 2020 – 30. júní 2021. Upplýsingarnar eru aðgengilegar á vefslóðinni https://www.eba.europa.eu/risk-analysis-and-data/eu-wide-transparency-exercise. Tilgangurinn með birtingu þessara upplýsinga á einum stað og á samanburðarhæfu formi er að styðja við gagnsæi og aðhald á evrópskum bankamarkaði. Á vefsíðu EBA má finna, á eftirfarandi slóð, handhæga leið til að bera saman upplýsingar um einstaka banka og skoða gögnin með myndrænum hætti, https://tools.eba.europa.eu/interactive-tools/2021/powerbi/tr21_visualisation_page.html.
Til baka