logo-for-printing

26. nóvember 2021

Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu hluta vátryggingastofns

Bygging Seðlabanka Íslands
Hér með tilkynnist um yfirfærslu hluta vátryggingastofns frá Mercantile Indemnity Company Limited, River Thames Insurance Company og Rombalds Run-Off Limited til Alpha Insurance NV. Fyrirhuguð yfirfærsla er í samræmi við tilkynningu dagsetta 25. nóvember 2021 frá breska fjármálaeftirlitinu, Prudential Regulation Authority.

Vátryggingartakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (Fjármálaeftirlitsins) vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.

Ekki liggja fyrir staðfestar upplýsingar um að hjá félaginu séu fyrirliggjandi vátryggingarsamningar vegna aðila hér á landi.

Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.
Til baka