logo-for-printing

29. október 2021

Fundargerð fjármálastöðugleikanefndar 27. – 28. september 2021

Fjármálastöðugleikanefnd ásamt ritara nefndarinnar.  Efri röð frá vinstri: Eggert Þröstur Þórarinsson, ritari, Tómas Brynjólfsson, Bryndís Ásbjarnardóttir, Guðmundur Kr. Tómasson og Axel Hall. Neðri röð frá vinstri: Rannveig Sigurðardóttir, Ásgeir Jónsson formaður, Gunnar Jakobsson og Unnur Gunnarsdóttir.

Fundargerð fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands 27. – 28. september 2021 hefur verið birt hér á vef Seðlabankans. Nefndarmenn ræddu meðal annars um stöðu og horfur fyrir fjármálastöðugleika, stöðu efnahagsmála, þróun á innlendum fjármálamörkuðum, stöðu og áhættu í fjármálakerfinu og í rekstri einstakra fjármálafyrirtækja, fjármálainnviði, netöryggi, kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki, fjármálasveifluna, eiginfjárauka vegna kerfislegs mikilvægis, sveiflujöfnunarauka og greiðslubyrðarhlutfall fasteignalána.

Sjá hér: Fundargerð fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands. Fundur 27. - 28. september 2021 (9.fundur). Birt 29. október 2021.

Sjá nánari upplýsingar um nefndina hér.

Til baka