logo-for-printing

22. júlí 2021

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 07/2021

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 06/2021 dagsett 22. júní sl. Grunnur dráttarvaxta, þ.e. lán gegn veði í 7 daga, er því óbreyttur 1,75%.
Dráttarvextir verða því áfram óbreyttir 8,75% fyrir tímabilið 1. - 31. ágúst 2021.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. ágúst 2021:

• Vextir óverðtryggðra útlána verða 3,45%
• Vextir verðtryggðra útlána verða 1,90%
• Vextir af skaðabótakröfum verða 2,30%

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 07/2021


Til baka