31. maí 2021
Fundargerð fjármálastöðugleikanefndar 12. - 13. apríl 2021
Fundargerð fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands 12. - 13. apríl 2021 hefur verið birt hér á vef Seðlabankans. Nefndarmenn ræddu um stöðu og horfur fyrir fjármálastöðugleika, stöðu efnahagsmála, þróun á innlendum fjármálamörkuðum, stöðu og áhættu í fjármálakerfinu og í rekstri einstakra fjármálafyrirtækja, vanskil, fasteignamarkaðinn, álagspróf, kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki, fjármálasveifluna og verkefni skilavalds.