logo-for-printing

20. apríl 2021

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 04/2021

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 03/2020 dags 19. mars sl. þar sem að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað að halda meginvöxtum bankans óbreyttum við síðustu meginvaxtaákvörðun sína hinn 24. mars sl. sbr. yfirlýsingu þar um sama dag. Grunnur dráttarvaxta, þ.e. lán gegn veði til 7 daga, er því óbreyttur 1,50%.

Dráttarvextir haldast þar af leiðandi óbreyttir og verða áfram 8,50% fyrir tímabilið 1. - 31. maí 2021.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, haldast einnig óbreyttir og verða því áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. maí 2021:

• Vextir óverðtryggðra útlána 3,30%
• Vextir verðtryggðra útlána 1,90%
• Vextir af skaðabótakröfum 2,20%

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 4/2021

Til baka