logo-for-printing

09. apríl 2021

Efnahagsyfirlit lánasjóða ríkisins

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir nú efnahagsyfirlit lánasjóða ríkisins sérstaklega en það var áður hluti af efnahagsyfirliti annarra fjármálafyrirtækja. Ástæða þessarar breytingar er ný flokkun Hagstofu Íslands á stofnunum og fyrirtækjum hins opinbera. Hingað til hafa einungis A-hluta stofnanir verið taldar til hins opinbera í hagtölum. B-hluta og C-hluta stofnanir hafa flokkast eftir starfsemi í aðra efnahagsgeira, t.d. sem fjármálafyrirtæki eða atvinnufyrirtæki. Gögn lánasjóða ríkisins ná aftur til mars 1992.

Nánari upplýsingar um aðferðafræði hagtöluvinnslu Seðlabankans má finna hér:

https://www.sedlabanki.is/hagtolur/adferdafraedi/

Gögnin má finna hér: Lánasjóðir ríkisins.


Til baka